1. Skyr, eda skur eins og daninn vill kalla
thetta. Thad er adeins ein búd sem selur skyr hér og thad er
fáránlega dýrt hérna........svo bragdast thad einhvernveginn ekki
eins.
2. Maturinn hennar múttu. Ég veit ekki hve mørg
kíló af pasta ég er búinn ad rústa.
3. Íslensk pylsa(med Y-i) med øllu og appelsín
í bauk med. Hvad er málid med thad ad hafa pylsuna helmingi stærri
en braudid. Thetta er bara ekki røkrétt!
4. Nóa Lakkríssprengjur. Ég vissi ad thad myndi
koma ad thessu. Á tímabili var ég kominn med smá tremma.....sat í
svitabadi og titradi heima á kollegíunni.
5. Thai style. Ég var nú ekki fastagestur
tharna en Khao Phad ped eda hvernig sem madur skrifar thetta er
hátt á lista yfir gourmet-rétti sem ég vill háma í mig núna. Sem
minnir mig á thad ad ég ætla ad reyna redda einhverskonar uppskrift
fyrir einhverju álíka.
6. Heimskulegu skotin theirra Eyma og Helga.
Tharna....ég sagdi thad. Thad er eitthvad svo svakalega hljótt í
kringum mig stundum. Thad vantar Stjána Fjelds eftirhermuna
labbandi á eftir mér øskrandi
7. Thorvaldur edlisfrædikennari. Ég er byrjadur
í smá stærdfrædi hérna og thad fer alveg ótrúlega í taugarnar á mér
hvad hann er ónákvæmur.....aldeilis sem Thorvaldur nádi ad troda
thví í mann á 3 árum ad vera drullunákvæmur.
Margt hefur gerst seinustu vikur og ekki séns ad ég geti ropad
thví øllu út úr mér hér á heimasídunni. Líf mitt thessa dagana
snýst um thad ad læra og sofa og finna mér eitthvad ad éta. Thad
hefur nú alveg gengid ágætlega samt...hef komid sjálfum mér
skemmtilega á óvart í theim málum. "Íbúdin" mín er ennthá svolítid
tómleg, bara eitt rúm og bord og tveir klappstólar. Er einnig búinn
ad finna mér hardcore Liverpool pub til ad horfa á enska boltann.
Thar hanga allir tjallarnir í køben og øskra á sjónvarpid
og allir med tølu í liverpool búningnum og med bjór í
hendi. Danir eru ekki jafn hrifnir af ensku deildinni og
íslendingar. Their sýna bara dønsku deildina sem er alveg fín, en
bara ekki thad sama.
Ég gæti haldid áfram eftir øllu kvøldi. En thar sem ad ég er enn
í skólanum og ætla fara ad skella mér á nýja hjólid mitt sem ég
keypti af fyllibyttu seinasta føstudagskvøld á adeins 50 kjell. Ég
held ad thetta hjól sé í sama klassa og bíllinn minn, sem er
náttúrulega topp græja.
Ryd á farartækjum er thad allra heitasta hér í DK!!! 